JafnlaunastefnaJafnlaunastefna Metro er ætlað að tryggja jafnrétti og jafna stöðu kynja innan fyrirtækisins. Markmiðið er að enginn kynbundinn mismunur eigi sér stað og við ákvörðun launa skal gæta þess að kynjum sé ekki mismunað. Allir skulu njóta jafnra kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf sem og hvers konar frekar þóknanna. Einnig skulu öll kyn njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hver önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár.Til þess að framfylgja stefnunni munu Metro framkvæma launagreiningu árlega þar sem borin eru saman jafnverðmæt og sambærileg störf. Jafnlaunamarkmið skulu endurskoðuð út frá niðurstöðum launagreiningar. Jafnlaunastefnan felur í sér skuldbindingu um stöðugar umbætur og ber forstjóri Metro ábyrgð á innleiðingu, viðhaldi og þeim frávikum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu. Stjórnendur skulu einnig skuldbinda sig til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun.Niðurstöður launagreininga skal kynna starfsfólki ár hvert.Forstjóri skal setja fram jafnlaunamarkmið, láta framkvæma innri úttekt og rýna jafnlaunakerfið og árangur þess árlega. Forstjóri ber ábyrgð á að jafnlaunastefnu sé framfylgt og ber ábyrgð á innleiðingu, umbótum og hlítingu á settum viðmiðum, sem og að tryggja að stjórnendur þekki stefnuna og uppfylli öll skilyrði hennar. Stefnan er í samræmi við lög um jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.Jafnlaunastefnan er unnin í samræmi við þau og lög og reglugerðir sem fjalla um jafna stöðu og jafnan rétt kynja sem og aðra mismunun og er hún hluti af launastefnu fyrirtækisins.Jafnlaunastefnu skal kynna fyrir starfsmönnum og hafa aðgengilega á vef fyrirtækisins og í handbók starfsmanna á hverjum stað. Jafnlaunastefna var samþykkt af stjórn Metro í apríl 2024.
Allir starfsmenn fái greidd sömu laun og njóti sömu kjara fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf óháð kyni.
Unnið skal að því að hlutfall kynja í stjórnendastörfum sé sem jafnast.
Ef fram kemur launamismunur sem ekki er hægt að skýra með öðru en kynferði verður hann leiðréttur. Vottun verður viðhaldið með reglulegri úttekt.
Ef stjórnunarstarf losnar skal gæta þess að bæði kynin hafi jafnan aðgang að ráðningu.
Forstjóri.
Innra eftirlit verður framkvæmt árlega sem og regluleg úttekt fagvottunaraðila.